9. desember 2020
Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Guðmundur Þorbjörnsson, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Maríanna Traustadóttir, Ragnar Frank Kristjánsson, Sævar Helgi Bragason, Jóhanna Harpa Árnadóttir, Sigurður Loftur Thorlacius, Steingrímur Jónsson, Hildur Hauksdóttir, Hrönn Hrafnsdóttir, Árni Finnsson, Guðfinna Th Aðalgeirsdóttir og Sigurður Eyþórsson. Guðný Káradóttir verkefnisstjóri skráði fundargerð. Gestir fundarins voru Hrafnhildur Bragadóttir frá Skipulagsstofnun (liður 2), Halla Sigrún Sigurðardóttir skrifstofustjóri loftslagsmála hjá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu (liður 3) og Bryndís Skúladóttir frá VSÓ (liður 2).
Fundurinn var haldinn á Teams.
Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar var samþykkt.
Viðauki við landsskipulagsstefnu
Loftslagsráði barst beiðni frá Skipulagsstofnun, beiðni um umsögn um tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 sem auglýst hefur verið til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011. Fulltrúar höfðu fengið viðaukann fyrir fundinn.
Hrafnhildur Bragadóttir sviðsstjóri stefnumótunar og miðlunar hjá Skipulagsstofnun kynnti gögn málsins, markmið og kynnti ferlið sem verið er að vinna eftir. Í tillögunni er sett fram sýn og stefna um skipulagsmál á landsvísu, leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga og aðra áætlanagerð um landnotkun og byggðaþróun. Landsskipulagsstefna 2015-2026 var samþykkt á Alþingi árið 2016. Umhverfis- og auðlindaráðherra óskaði árið 2018 eftir viðbótum við gildandi stefnu út frá loftslagsmálum, landslagi og lýðheilsu, auk þess að óska eftir að stefnu um skipulag haf- og strandsvæði yrði yfirfarin. Skipulagið á að stuðla að kolefnishlutleysi og viðnámsþrótti gagnvart afleiðingum loftslagsbreytinga. Fram kom í máli hennar að hugtakið loftslagsmiðað skipulag nær bæði til mótvægisaðgerða og aðlögunar. Kynningartími stefnunnar er til 8. janúar 2021.
Í umræðum var m.a. rætt um tengsl við aðrar áætlanir og stefnur, sem og mikilvægi þess að meta loftslagsáhrif áætlana. Hlutverk sveitarstjórna er talið mikilvægt en geta þeirra til að setja sig inn í loftslagsvíddina talin mismunandi eftir stærð þeirra. Rætt var um mikilvægi vals á landi undir byggð og samgöngur sem og um mat á kolefnisspori og tengsl skipulags við kolefnisbindingu, val á landi og bindingu í bergi.
Ákveðið var að veita umsögn um viðaukann og taka tillit til tengsla við landsáætlun í skógrækt. Bryndís Skúladóttir mun vinna með ráðinu að því að rýna viðaukann og leggja grunn að áliti með vísan til fyrri umsagna ráðsins og greinargerða sem lagt verður fram til samþykktar á fundi ráðsins 13. janúar nk.
Nýr skrifstofustjóri loftslagsmála
Halla Sigrún Sigurðardóttir sem ráðin hefur verið sem skrifstofustjóri loftslagsmála í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, kom á fundinn og kynnti sig og starfið framundan á skrifstofu loftslagsmála.
Fram kom að Anna Sigurveig Ragnarsdóttir sérfræðingur á skrifstofu loftslagsmála er tengiliður við Loftslagsráð.
Starfsreglur
Lokadrög að starfsreglur lágu fyrir fundinum til afgreiðslu og voru þær samþykktar samhljóða.
Verkefnastjóra var falið að birta starfsreglurnar á vef ráðsins.
Starfsáætlun
Kynntar voru ítarlegri útfærslur á viðburðarröð sem er á starfsáætlun í tengslum við lið 3. Kolefnishlutleysi og aðrar skuldbindingar. Skipulagðir verði 3-4 viðburðir í vetur og vor sbr. áherslur í starfsáætlun. Hefja skipulagningu tveggja strax og velja næstu viðfangsefni í janúar. Markmiðin voru rifjuð upp og ákveðið að fyrsti viðburðurinn yrði helgaður kolefnishlutleysi og sá næsti sjávarútvegi. Stefnt að því að halda fyrsta fundinn fyrri hluta febrúar og þann næsta í mars.
Önnur mál
Verkefnastjóri kynnti samskiptayfirlit sem fulltrúar höfðu aðgang að fyrir fundinn. Í því er tekið saman það helsta sem gert hefur verið í kynningar- og samskiptamálum ráðsins s.s. vefur, samfélagsmiðlar, fyrirlestrar og skipulag viðburða á vegum ráðsins, erindi til ráðsins og fundir sem haldnir hafa verið. Einnig umfjöllun fjölmiðla um loftslagsmál og Loftslagsráð. Fulltrúar lýstu ánægju með það aukna gagnsæi sem felst í reglulegri upplýsingagjöf frá skrifstofu ráðsins.
Fram kom sú hugmynd að bjóða fleiri ráðherrum eða ráðuneytisstjórum til samráðs við ráðið. Var hugmyndinni vel tekið og mun framkvæmdastjórn skoða möguleika á framkvæmd hennar.
Kynnt var fyrirhugað samstarf við Staðlaráð um að halda vinnustofu í tengslum við ábyrga kolefnisjöfnun og vottunarmál. Tilgangurinn er að leiða saman gerendur og hagaðila í samtal til að greina þarfir og kröfur til ramma um markað um kolefniseiningar, framleiðslu, viðskipti og skráningu þeirra (sem og afskráningu). Ráðið fagnaði þessu.
Fyrir fundinum lá fundaáætlun fyrir seinni hluta starfsársins 2020-2021. Engar athugasemdir bárust við fundadagsetningar og mun verkefnisstjóri boða níu fundi á tímabilinu janúar til júní 2021.
Að lokum tilkynntu tveir fulltrúar að þeir væru að víkja úr ráðinu vegna breytinga á starfsvettvangi. Það eru þau Ragnar Frank Kristjánsson sem er annar fulltrúa sveitarfélaga og Maríanna Traustadóttir fulltrúi ASÍ. Þau tóku til máls og kvöddu ráðið. Að lokum voru þeim þökkuð góð störf í þágu ráðsins.