ERINDI OG MINNISBLÖÐ

11.maí 2026

Umsögn Loftslagsráðs um frumvarp til loftslagslaga

Loftslagsráð fagnar frumvarpi til nýrra loftslagslaga, sem tekur á mörgum veikleikum núverandi löggjafar. Reynslan sýnir að stjórnsýsla loftslagsmála hefur ekki skilað nægilegum árangri, einkum þegar litið er til þróunar nettólosunar. Eftirfylgni skortir og ekki hefur tekist að koma á áhrifaríku kerfi eftirfylgdar sem skapa getur fyrirsjáanlega til fjárfestinga, virkjað lykilgerendur og tryggt að fjárveitingar ríkissjóðs skili tilætluðum árangri.

29. apríl 2026

Minnisblað til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um viðbrögð tengd veikingu og mögulegu hruni Veltihringrásar Atlantshafsins

Nýjar og nýlegar rannsóknir gefa sterkar vísbendingum um breytingar á Veltihringrás Atlantshafsins (Atlantic Meridiona Overturning Circultation, AMOC). Að því tilefni sendi Loftslagsráð Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra minnisblað um viðbrögð tengd veikingu og mögulegu hruni Veltihringrásarinnar. Ráðið telur vísbendingar um breytingar það afgerandi að þegar þurfi að bregðast við með stórauknum aðgerðum og standa vörð um ítrustu markmið Parísarsamningsins, draga hratt og markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda en samhliða auka bindingu kolefnis.

4. nóvember 2025

Minnisblað til forsætisráðuneytis vegna mótunar atvinnustefnu.

Forsætisráðuneytið kynnti áform um mótun atvinnustefnu til ársins 2035 í samráðsgátt haustið 2025. Af því tilefni tók Loftslagsráð saman minnisblað sem samþykkt var á fundir ráðsins 4. nóvember og í kjölfarið sent til forsætisráðuneytis.

Loftslagsráð fagnar því að stjórnvöld ætli að vinna að heildstæðri atvinnustefnu með sérstakri áherslu á loftslagsáhrif. Atvinnustefnan mun því leggja grunn að þróun lágkolefnahagkerfis til 2035.

24. október 2025

Umsögn Loftslagsráðs um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki

Umsögn Loftslagsráðs til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki. Vegasamgöngur eru stærsti þáttur samfélagslosunar á Íslandi og því lykilaðgerð þegar kemur að samdrætti í losun Íslands. Skortur er á heildrænni stefnu og greiningum að mati ráðsins.

3. október 2025

Minnisblað Loftslagsráðs til umhverfis,- orku og loftslagsráðherra og utanríkisráðherra um landsframlag Íslands gagnvart Parísarsamningnum.

Loftslagsráð tók skoðunar landsframlag Íslands gagnvart Parísarsamningnum og þær þjóðréttarlegu skuldbindingar sem eru því samfara. Einkum að því er varðar samstarf Íslands, Noregs og Evrópusambandsins (ESB). Vöknuðu spurningar hjá Loftslagsráði m.a. í framhaldi af fréttaflutningi um fyrirhugaða uppfærslu á landsframlagi Íslands til 2030. Unnin var ítarleg álitsgerð og minnisblað sem send voru til tveggja ráðherra.