Tækifæri og áskoranir í loftslagsvænni uppbyggingu ferðaþjónustu
Yfirlit
2
3

Loftslagsráð býður til samtals og sóknar í loftslagsmálum. Markmiðið er að varpa ljósi á sóknarfæri sem felast í krefjandi markmiðssetningu og loftslagsvænum fjárfestingum, koma á virkara samtali við framfaraöfl innan atvinnugreina og um nýsköpunarstarf, sem og að setja umræðu um 2030 markmið í loftslagsmálum í samhengi við áfanga í átt að kolefnishlutleysi.

Í þessu fyrsta samtali af nokkrum, verður rætt um tækifæri og áskoranir í loftslagsvænni uppbyggingu ferðaþjónustu til framtíðar. Samtalinu verður streymt á vefnum miðvikudaginn 5. maí kl. 13-14.30.

Streymið:

Þátttakendur eru:

Auður Ingólfsdóttir Auður H. Ingólfsdóttir, ráðgjafi og formaður stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs
Jón Gestur Ólafsson Jón Gestur Ólafsson,gæða,- umhverfis-og öryggisstjóri Bílaleigu Akureyrar
Rannveig Grétarsdóttir Rannveig Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Eldingar
 Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku
Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir,prófessor við verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands – fulltrúi háskólasamfélagsins í Loftslagsráði
Sveinn Margeirsson Sveinn Margeirsson,sveitarstjóri Skútustaðahrepps – fulltrúi sveitarfélaga í Loftslagsráði
Snjólaug Ólafsdóttir Snjólaug Ólafsdóttir,ráðgjafi í sjálfbærnimálum hjá EY – fundarstjóri

Vinsamlegast skráið ykkur hér og við munum senda hlekk fyrir fundinn.