Fundargerð 96. fundar Loftslagsráðs

7. maí 2026

Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Inga Svala Jónsdóttir og Þorgerður María Þorbjarnardóttir.

Fundurinn var haldinn á Veðurstofunni, Bústaðarvegi 7.

Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.

Fundargerð seinasta fundar

Fundargerð 95. fundar sem haldinn var 16. apríl 2026 var samþykkt án athugasemda.

Skýrsla starfshóps innviðaráðuneytis um strandsiglingar

Gestur: Magnús Jóhannesson formaður starfshóps um strandsiglingar

Innviðaráðherra skipaði sl. haust starfshóp um strandsiglingar. Hópnum var fengið það hlutverk að leggja fram aðgerðaáætlun um leiðir til að efla strandflutninga hér á landi og auka vöruflutninga á sjó í stað flutninga á þjóðvegum, einkum til þess að minnka álag á vegi landsins og draga úr umhverfisáhrifum. Í febrúar 2026 skilaði starfshópurinn skýrslu undir yfirskriftinni „Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?“ og eru tillögur starfshópsins nú til skoðunar í ráðuneytinu og skulu lagðar til grundvallar í frekari stefnumótun í málaflokknum, þ.m.t. í samgönguáætlun.

Starfshópnum var m.a. gert að byggja á Skýrslu Vegagerðarinnar um strandflutninga að beiðni innviðaráðherra frá desember 2024. Til viðbótar vann stofnunin fyrir starfshópinn, viðauka við skýrslu sína sem lokið var við í október 2025.

Magnús Jóhannesson kynnti vinnu starfshópsins og efni skýrslunnar fyrir ráðinu og svaraði spurningum ráðsmeðlima.


Greining á áliti alþjóðadómstólsins í Haag

Í ráðgefandi áliti Alþjóðadómstólsins frá 23. júlí 2025 í málinu Obligations of States in respect of Climate Change var varpað skýru ljósi á margvíslegar skyldur ríkja á sviði loftslagsmála. Í álitinu svaraði dómstóllinn tveimur meginspurningum. Annars vegar hverjar skyldur ríkja eru að þjóðarétti í tengslum við loftslagsbreytingar. Hins vegar hvaða réttaráhrif leiða af vanefndum þeirra.

Bjarni Már Magnússon vinnur að álitsgerð um efni álitsins fyrir ráðið, en markmið hennar er að leggja fram hagnýta greiningu á því hvernig ráðgefandi álit alþjóðadómstólsins hefur áhrif á þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands og hvaða ráðuneyti bera ábyrgð á framfylgd þeirra skuldbindinga. Bjarni Már fór yfir helstu efnistök og fyrstu niðurstöður ítarlegrar yfirferðar sinnar á álitinu. Stefnt er að því að álitsgerðin liggi fyrir á lokafundi ráðsins í júní og verði birt opinberlega í kjölfarið.

Frumvarp til loftslagslaga

Frumvarp til loftslagslaga liggur fyrir á Alþingi og leitað er umsagnar Loftslagsráðs. Frestur til að skila athugasemdum til umhverfis- og samgöngunefndar stendur til 8. maí.

Drög að umsögn Loftslagsráðs lá fyrir fundum til umræðu og samþykktar. Ákveðið var að vinna frekar í álitinu í ljósi umræðu fundarins og að ný útgáfa verði send fulltrúum til samþykktar.

Önnur mál

Fleira var ekki rætt og fundi slitið.