16. apríl 2026
Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Helga Ögmundardóttir, Stefán Þór Eysteinsson og Þorgerður María Þorbjarnardóttir.
Fundurinn var haldinn á Veðurstofunni, Bústaðarvegi 7.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð 94. fundar sem haldinn var 19. mars 2026 var samþykkt án athugasemda.
Veltihringrás Norður-Atlantshafsins – frumkvæði Íslands og næstu skref
Á 94. fundi Loftslagsráðs var fjallað um að Ísland hefur skilgreint hættur af röskun á veltihringrás Norður-Atlantshafsins sem þjóðaröryggismál. Sú ákvörðun hefur vakið mikla athygli og spurningar um hvernig Ísland hyggst fylgja þeirri ákvörðun eftir bæði hér heima fyrir og á alþjóðavettvangi.
Umræðunni var haldið áfram og var ákveðið að vinna stutt minnisblað til ráðherra. Farið var yfir efnistök minnisblaðsins sem afgreitt verður með rafrænum hætti fyrir fund ráðsins 7. maí.
Viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir EU-ETS
Undanfarin misseri hefur viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (EU-ETS) verið ofarlega í umræðunni á Íslandi og svo er einnig í Evrópu. Kerfið er ein af þremur lykilstoðum í nálgun ESB varðandi samdrátt í losun og tekur Ísland þátt í því sem hluti af EES samningnum. Þrátt fyrir að Ísland sé með eigið markmið gagnvart Parísarsamningum, reiðir Ísland sig á kerfi ESB í stefnumörkun um aðgerðir innanlands eins og hún birtist í aðgerðaáætlun í loftslagmálum. Eins miðar framsetning landsframlags Íslands til markmiðs Parísarsamningsins mjög við þátttöku í kerfum ESB.
Þá hefur ETS kerfið borið komið upp í umfjöllun Loftslagsráðs um önnur mál en til þessa hefur ETS í heild sinni ekki verið tekið til sérstakrar umræðu síðan ráðið var endurskipað 2024.
Á fundinum var rætt almennt um ETS kerfið og mögulega aðkomu Loftslagsráðs næstu mánuði.
Önnur mál
a. Staðreyndablöð um losun gróðurhúsalofttegunda.
Tilkynnt var um að staðreyndablöðin hafa verið uppfærð með nýjustu tölum Umhverfis- og orkustofnunar og unnið er að því að birta þau á vef Loftslagsráðs.
b. Atvinnustefna Íslands
Ríkisstjórnin hefur samþykkt nýja atvinnustefnu Íslands og var hún kynnt föstudaginn 10. apríl. Tekið var tillit til tillögu ráðsins um að heildarlosun GHL verði tekin til greina til viðbótar við kolefniskræfni.
c. Fjármálaáætlun
Fjármálaáætlun var kynnt nýlega og vakti það áhuga fulltrúa í ráðinu að útlit er fyrir að fjármagn í til loftslagsmála og í loftslagssjóð hafi verið skorið niður. Ákveðið var að ráðið myndi leita skýringa hjá URN.
d. Frumvarp til laga um loftslagsmál
Kom fram á fundinum að frumvarp til laga um loftslagsmál var birt á síðu Alþingis 1. apríl, ekki liggur fyrir hvenær mælt verður fyrir frumvarpinu og Loftslagsráð mun skila umsögn til þingsins.
