27. febrúar 2026
Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Helga Ögmundardóttir, Ingibjörg Svala Jónsdóttir og Þorgerður María Þorbjarnardóttir.
Fundurinn var haldinn á Veðurstofunni, Bústaðarvegi 7.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð 93. fundar sem haldinn var 27. febrúar 2026 var samþykkt án athugasemda.
Skýrsla verkefnastjórnar loftslagsaðgerða
Skýrsla verkefnastjórnar loftslagsaðgerða var gerð opinber 20. nóvember. Samkvæmt 5.gr. laga um loftslagsmál, ber verkefnastjórn að skila árlega skýrslu til ráðherra um framgang aðgerðaáætlunar. Í skýrslunni skal farið yfir þróun losunar og hvort hún er í samræmi við áætlanir, fjallað um framgang aðgerða og eftir atvikum settar fram ábendingar verkefnisstjórnar.
Slík skýrsla var síðast tekin saman árið 2022. Loftslagsráð hefur fjallað um fyrri skýrslur verkefnastjórnar og gaf ráðið m.a. út álit um fyrstu stöðuskýrslu verkefnastjórnar sem kom út 2021.
Í drögum að frumvarpi um heildaruppfærslu á lögum um loftslagsmál er ráðinu falið það hlutverk að rýna fyrrnefnda skýrslu verkefnastjórnar árlega.
Skýrslan var einnig til umræðu á 92. og 93. fundi Loftslagsráðs. Byggt á umræðu fulltrúa á tveimur seinustu fundum ráðsins lágu lokadrög að áliti fyrir fundinum.
Umsögnin var samþykkt á fundinum með minniháttar breytingum.
Veltihringrás Norður-Atlantshafsins – frumkvæði Íslands og næstu skref
Ísland hefur skilgreint hættur af röskun á veltihringrás Norður-Atlantshafsins sem þjóðaröryggismál. Sú ákvörðun hefur vakið mikla athygli og spurningar um hvernig Ísland hyggst fylgja þeirri ákvörðun eftir, hér heima fyrir og á alþjóðavettvangi. Þetta hefur örvað umræðu innanlands um alvarleika loftslagsvár og hugsanleg viðbrögð. Nokkuð hefur einnig borið á umræðu um hugsanlega framtíðarbeitingu tækni til beinna inngripa í orkujöfnuð jarðarinnar (SRM – solar radiation management).
Farið var yfir aðkomu Þjóðaröryggisráðs og málflutning umhverfis-, orku og loftslagsráðherra og fleiri aðila innan lands og utan varandi þessa ógn. Ákveðið var að Loftslagsráð myndi fjalla frekar um málið á næstu fundum.
Starfsáætlun 2026
Loftslagsráð vinnur samkvæmt starfsáætlun sem birt er opinberlega. Hún er einnig notuð við skipulag og framfylgd verkefna skrifstofu ráðsins. Á seinasta fundi var farið yfir framsetningu starfsáætlunar og ársskýrslu fyrir árið 2025.
Starfsáætlun yfirstandandi árs var lögð fram á fundinum og verður hún birt á vef Loftslagsráðs.
Önnur mál
a. Greint var frá fundi framkvæmdastjórnar með umhverfis-, orku og loftslagsráðherra 9. mars.
