Fundargerð 82. fundar Loftslagsráðs

07. apríl 2025

Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Helga Ögmundardóttir, Ingibjörg Svala Jónsdóttir, Stefán Þór Eysteinsson, Þorgerður María Þorbjarnardóttir.

Fundurinn var haldinn á Veðurstofu Íslands, kl. 14:00-16:00.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.

Fundargerð seinasta fundar

Fundargerð 81. fundar, sem haldinn var 20. mars skoðast samþykkt.

Kynning á framreikningum Íslands um losun gróðurhúsalofttegunda

Umræða um skuldbindingar Íslands og 6. grein Parísarsamningsins sem fjallar um samstarf um framkvæmd skuldbindinga og kolefnismarkaði.

Árið 2023 skipaði þáverandi loftslagsráðherra starfshóp til að kortleggja stöðu og tækifæri til viðskipta með kolefniseiningar hér á landi. Skilaði hópurinn tillögum sínum til ráðherra í lok árs 2024.  Á 29. aðildarríkjaþingi Loftslagsamningsins (COP29) í Aserbaísjan náðist sá mikilvægi áfangi að gengið var frá regluverki Parísarsamningsins um grein 6.

Helga Barðadóttir, sérfræðingur, umhverfis-, orku og loftslagsráðuneyti greindi frá stöðunni í víðara samhengi og upplýsti ráðið um stefnumörkun stjórnvalda á grundvelli 6. greinar Parísarsamningsins.

Ákveðið var að halda áfram umfjöllun um þetta viðfangsefni.

Skuldbindingar Íslands og grein 6 í Parísarsamningnum

Lög um loftslagsmál

Í ráðuneyti umhverfis-, orku- og loftslagsmála er unnið að frumvarpi til breytinga á lögum 70/2012 um loftslagsmál. Frumdrög sem enn eru í vinnslu voru send ráðinu og óskað eftir athugasemdum sem fyrst, áður en frumvarpið verður sett í samráðgátt.

Frumdrögin voru tekin til umræðu og ákveðið að meðlimir ráðsins sendi inn skriflegar athugasemdir sem verða teknar saman og sendar til ráðuneytis eftir páska. Ráðið mun, samkvæmt upplýsingum frá umhverfis- orku og loftslagsráðuneyti fá tækifæri til frekari athugasemda á síðari stigum. Jafnframt var ákveðið að mynda undirhóp sem fylgist með endurskoðun laganna þar til ný lög hafa verið samþykkt á Alþingi.

Önnur mál

Fundur með umhverfis-, orku og loftslagsráðherra.
Rætt var um fund Loftslagsráðs með umhverfis-, orku og loftslagráðherra þann 25. mars sl.

Vinnustofa um aðlögun að loftslagsbreytingum 27. maí.

Leitað var eftir samstarfi við Loftslagsráð um vinnustofu um rannsóknir og tækifæri á sviði aðlögunar að loftslagsbreytingum en að vinnustofunni standa Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís. Formaður og framkvæmdastjóri funduðu með aðstandendum vinnustofunnar fyrr í mánuðinum og mun formaður ráðsins vera með erindi í upphafi fundar. Fulltrúum í ráðinu verður boðið að taka þátt.