Skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga

Umfjöllunarefni

Í þessari álitsgerð, sem Dr. Bjarni Már Magnússon lögfræðingur og meðlimur í Loftslagsráði hefur tekið saman er farið ýtarlega yfir þýðingu ráðgefandi álits Alþjóðadómstólsins frá 23.júlí 2025 um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga.

Álit Alþjóðadómstólsins er umfangsmesta ráðgefandi álit í sögu dómstólsins, og var samþykkt samhljóða af öllum 15 dómurum, og markar tímamót í þróun þjóðarréttar á sviði loftslagsmála. Í álitinu skýrir dómstóllinn hvernig loftslagsskuldbindingar ríkja grundvallast ekki aðeins á rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar og Parísarsamningnum, heldur fjölmörgum öðrum samningum sem snerta samfélagið allt.  Auk þess útskýrir álitið ítarlega hvernig ríki geta orðið ábyrg fyrir brotum á þessum skuldbindingum.

Helstu niðurstöður

Niðurstaða Dr. Bjarna Más er sú að álit Alþjóðadómstólsins hafi verulega þýðingu fyrir íslenska lagaframkvæmd. Álitið kalli á heildstætt endurmat stjórnvalda á því hvernig loftslagsskuldbindingum Íslands sé fylgt eftir í stefnumótun og stjórnsýslu. Í því ljósi sé sérstaklega brýnt að meta hvort íslenska landsframlagið samkvæmt Parísarsamningnum —sem felur í sér markmið stjórnvalda um samdrátt í losun—standist þau efnislegu viðmið sem dómstóllinn setur. Þá þarf einnig að skoða vandlega hvort innlend löggjöf og stjórnsýsluhættir uppfylli kröfur um tilhlýðilega aðgæslu hvað loftslagsmál varðar, og hvaða áhrif niðurstaðan hafi á ákvarðanatöku um auðlindanýtingu og aðra starfsemi sem hefur áhrif á loftslagsmál. 

Að áliti Alþjóðadómstólsins ber ríkjum heims að sporna við loftslagsbreytingum af ýtrasta metnaði og á grunni bestu fáanlegrar þekkingar. Þessar skyldur hvíla ekki einungis á alþjóðlegum loftslagssamningum, heldur einnig öðrum umhverfissamningum, og sáttmálum á öðrum sviðum, s.s. mannréttindasáttmálum og hafréttarsáttmálum, og á almennum alþjóðareglum um ábyrgð ríkja á ólögmætri háttsemi.  Íslensk stjórnsýsla þarf að aðlaga sig að þessum breytta veruleika. Loftslagsbreytingar eru ekki afmarkað viðfangsefni í einu ráðuneyti eða á einu afmörkuðu sviði samfélagsins. Þau varða samfélagið allt og skyldur til loftslagsaðgerða byggja á víðtækum rétti núlifandi og komandi kynslóða, t.d. til lífs, búsetu og heilsusamlegra skilyrða.