27. febrúar 2025
Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Helga Ögmundardóttir, Stefán Þór Eysteinsson og Þorgerður María Þorbjarnardóttir.
Fundurinn var haldinn á Veðurstofunni, Bústaðarvegi 7.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð 92. fundar sem haldinn var 5. febrúar 2026 var samþykkt án athugasemda.
Skýrsla verkefnastjórnar loftslagsaðgerða
Skýrsla verkefnastjórnar loftslagsaðgerða var gerð opinber 20. nóvember. Samkvæmt 5.gr. laga um loftslagsmál, ber verkefnastjórn að skila árlega skýrslu til ráðherra um framgang aðgerðaáætlunar. Í skýrslunni skal farið yfir þróun losunar og hvort hún er í samræmi við áætlanir, fjallað um framgang aðgerða og eftir atvikum settar fram ábendingar verkefnisstjórnar. Skýrslan var einnig til umræðu á 92. fundi Loftslagsráðs.
Fyrir fundinum lágu drög að áliti sem var til umræðu á fundinum. Unnið verður úr viðbrögðum fulltrúa og lokadrög lögð fyrir næsta fund.
Starfsáætlun 2026
Loftslagsráð vinnur samkvæmt starfsáætlun sem birt er opinberlega. Hún er einnig notuð við skipulag og framfylgd verkefna skrifstofu ráðsins. Farið var yfir framsetningu starfsáætlunar og ársskýrslu fyrir árið 2025.
Rætt var um hvernig hátta skuli framsetningu starfsáætlunar yfirstandandi árs og hvernig best mætti koma til skila starfsáherslum ráðsins og setja afurðir þess í heildarsamhengi.
Önnur mál
a. Greint var frá fundi framkvæmdastjórnar með verkefnastjórn um aðgerðir í loftslagsmálum 18. febrúar.
b. Greint var frá fundi framkvæmdastjórnar 23. febrúar með fulltrúum umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytis um drög að frumvarpi til laga um loftslagsmál.
