Fundargerð 91. fundar Loftslagsráðs

18. desember 2025

Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Stefán Þór Eysteinsson, Þorgerður María Þorbjarnardóttir.

Fundurinn var haldinn á Veðurstofunni, Bústaðarvegi 7

Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.

Fundargerð seinasta fundar

Fundargerð 90. fundar sem haldinn var 18. desember 2025 var samþykkt án athugasemda.

Aðlögunaráætlun

Fyrsta aðlögunaráætlun Íslands vegna áhrifa loftslagsbreytinga hefur verið í undirbúningi undanfarin ár.

Óskað var eftir áliti ráðsins á forgangsröðun fyrstu aðgerða og áætluninni í heild sinni. Barst ráðinu tillaga verkefnastjórnar að aðlögunaráætlun, 14. nóvember auk minnisblaðs með ítarefni vegna tillögu verkefnastjórnar þann 19. nóvember.

Fyrir fundinum lágu drög að efnistökum álits eftir umræður á fundi ráðsins í lok nóvember. Óskað var frekari breytinga á álitinu sem ekki náðist að ljúka á fundinum. Ákveðið var að framkvæmdastjórn myndi vinna nýja útgáfu í ljósi athugasemda og leitast við að ljúka afgreiðslu sem fyrst.

Mótun atvinnustefnu

Á fundinum var rætt um viðbrögð Loftslagsráðs við mótun atvinnustefnu, sem samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneyti lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífinu að aukinni verðmætasköpun í jafnvægi við samfélag, umhverfi og innviði.

Á 88. fundi ráðsins 4. nóvember var samþykkt minnisblað til forsætisráðuneytis vegna mótunar atvinnustefnu. Drög forsætisráðuneytis að atvinnustefnu voru síðan birt í samráðsgátt 14. nóvember.

Á fundi ráðsins þann 27. nóvember var ákveðið að ráðið myndi bregðast við með áliti sem yrði gert opinbert í byrjun nýs árs. Fyrir fundinum lágu lokadrög sem samþykkt voru á fundinum með minniháttar breytingu.

Staðreyndablöð

Vinnuhópur um tölur um losun hefur verið að störfum síðan í vor og lagt drög að staðreyndablöðum um losun gróðurhúsalofttegunda í einstaka geirum. Á starfsdegi

ráðsins, 26. september sl. var ákveðið að ljúka við verkefnið fyrir alla geira. Var niðurstaða fundarins að blöðin yrðu stutt, en hnitmiðuð.

Undanfarnar vikur hefur verið unnið að staðreyndablöðum fyrir aðra þætti hagkerfisins þ.e. jarðvarmavirkjanir, landbúnað og úrgang. Unnið verður að frekari greiningum og staðreyndablöð unnin fyrir aðra geira samfélagslosunar. Stefnt er að birtingu innan fárra vikna.

Samantekt um votlendi

Verkefnið snýr að því að meta stöðu þekkingar á losun frá votlendi.

Fyrir fundinum lágu drög til umræðu og verður unnið áfram með skýrsluna í ljósi athugasemda sem komu fram á fundinum. Stefnt er að útgáfu hennar í febrúar.

Önnur mál

Annað var ekki til umræðu og fundi slitið.