22. maí 2025
Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Auður Alfa Jónsdóttir, Bjarni Már Magnússon, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Halldór Björnsson, Stefán Þór Eysteinsson, Þorgerður María Þorbjarnardóttir.
Fundurinn var haldinn á Veðurstofu Íslands, kl. 14:00-16:00.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð 83. fundar, sem haldinn var 5. maí skoðast samþykkt.
Aðlögun að loftslagsbreytingum og vísindaráðgjöfum og vísindaráðgjöf
Framhald umræðu á seinasta fundi um aðlögun að loftslagsbreytingum.
Gestur fundarins var Anna Hulda Ólafsdóttir, skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar á Veðurstofu Íslands og kynnti hún stöðu undirbúnings aðlögunaráætlunar.
Eitt af fyrstu verkefnum Loftslagsráðs var að taka til umfjöllunar aðlögun að loftslagsbreytingum.. Á grunni málþings og vinnustofu á vegum Loftslagsráðs á vordögum 2019 var tekin saman umræðuplaggið Að búa sig undir breyttan heim, sem hefur haft umtalsverð áhrif.
Vísindanefndir skipaðar af ráðherrum loftslagsmála hafa hver á fætur annarri lagt mat á áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi og voru þær ásamt fyrrnefndu umræðuplaggi Loftslagsráðs, til grundvallar Hvítbók um aðlögun að loftslagsbreytingum – drög að stefnu sem gefin var út af umhverfis- og auðlindaráðuneyti árið 2021. Í kjölfarið birtist fyrsta stefna Íslands um aðlögun að loftslagsbreytingum Í ljósi loftslagsvár. Síðan kom út stefnuplaggið Loftslagsþolið Ísland – Tillögur fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun 2023 þar sem sett voru fram markmið aðlögunar hér á landi.
Eftir kynninguna frá Önnu Huldu hélt ráðið áfram umræðu um stöðuna í stefnumörkun og framkvæmd aðlögunaraðgerða og hvernig efla mætti vísindalegan grunn ákvarðanatöku og takast á við þekkingargötin níu sem Vísindanefndin dró fram í skilabréfi sínu til ráðherra 3. janúar 2024 og rakin voru í minnisblaði fráfarandi formanns nefndarinnar til ráðsins.
Umræða um stöðu á þróun losunar
Ráðið ræddi nýlega kynningu Umhverfisstofnunar á framreikningum á losun gróðurhúsalofttegunda. Fyrri ábendingar ráðsins um þróun losunar eru enn í fullu gildi.
Önnur mál
Farið var yfir starf vinnuhópanna tveggja um þróun losunar og endurheimt votlendis og gengur það að óskum.