Tímamót í loftslagsaðgerðum
16. júní, 2025

Loftslagsráð samþykkti á fundi sínum 12. júní álit undir yfirskriftinni Tímamót í loftslagsaðgerðum.

Að mati Loftslagsáðs eru þau þáttaskil í framkvæmd loftlagsaðgerða, sem ráðið kallaði eftir í aðdraganda þingkosninga í nóvember 2024, ekki komin fram. Stjórnsýsla loftslagsmála sé enn of sundurlaus sem birtist einkum í veikri verkstjórn og eftirfylgni, ómarkvissri ráðstöfun fjármuna, skorti á upplýsingamiðlun og takmörkuðu samráði við almenning.

Ráðið bendir á að samdráttur í nýskráningu hreinna rafbíla afhjúpi veikleika í samþættingu hagstjórnar við markmið í loftslagsmálum. Beita þarf hagrænum stjórntækjum – sköttum, gjöldum og ívilnunum – með heildarmarkmið og langtímasjónarmið að leiðarljósi.

Ísland hefur skuldbundið sig til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda fyrir 2030 í samstarfi við Evrópusambandið og Noreg. Vanefndir geta reynst kostnaðarasamar og hagkvæmara er að fjárfesta strax í aðgerðum sem samhliða stuðla að velferð og hagsæld.

Afleiðingar loftslagsvár eru þegar komnar fram hér á landi. Ráðið leggur áherslu á að efla vöktun, rannsóknir og miðlun upplýsinga til að styðja við ákvarðanatöku og draga úr áhættu. Þróa þarf opinberar sviðsmyndir um þróun lykiláhættuþátta á næstu áratugum svo taka megi upplýstar ákvarðanir um skipulag og verklegar framkvæmdir.

Vísindanefnd um loftslagsbreytingarnar benti árið 2023 á að þekkingu og rannsóknir skorti á mörgum sviðum tengdum loftslagsbreytingum. Sumar þessara ábendinga komu einnig fram í skýrslu nefndarinnar árið 2008. Því miðar of hægt að efla rannsóknir sem byggja má á stefnumótun vegna áhrifa loftslagsbreytinga.

Loftslagsráð hvetur stjórnvöld eindregið til að hraða og vanda til undirbúnings nýs landsframlags til Parísarsamningsins fyrir tímabilið 2031–2035, sem leggja þarf fram í aðdraganda næsta aðildarríkjaþing samningsins í Brasilíu í nóvember. Samhliða þarf að treysta undirstöður samstarfs við ESB og Noreg um markmiðssetningu og framkvæmd og tryggja þverpólitíska samstöðu hér á landi um réttlát umskipti.