Umfjöllunarefni
Loftslagsráð hefur lagt mat á stöðuna í loftslagsmálum í kjölfar COP27 til að upplýsa og auka meðvitun hér á landi um mikilvægi alþjóðlegrar samstillingar og samstarfs. Einnig er vikið að stöðu Íslands í þessu samhengi.
Helstu ábendingar
- Samþykkt um stofnun alþjóðlegs loftslagshamfarasjóðs er fagnaðarefni, en útfærslan er óljós.
- Mikilvægt er að markmiðið um að halda hnattrænni hlýnun innan 1,5°C sé enn virt, en aukinn þrýstingur á að gefa þá markalínu eftir er áhyggjuefni.
- Kröfur um að draga hratt úr notkun olíu og gass en ekki bara kola, líkt og samþykkt var á COP26 í Glasgow, hafa aukist til muna. Fyrirstaðan er þó enn öflug.
- Vísbendingar eru um að veldisvöxtur í notkun hreinna orkugjafa sé að hefjast, sem veitir von.
- Sérstök ástæða er til að fagna ályktun um að ungt fólk skuli í auknum mæli haft með í ráðum.
- Íslensk stjórnvöld verða að taka sig á, eigi Ísland að ná settum loftslagsmarkmiðum.