27. febrúar 2019
Mætt: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Pétur Reimarsson, Hrönn Hrafnsdóttir, Sigurður Eyþórsson, Ragnhildur Freysteinsdóttir, Árni Finnsson, Guðfinna Aðalgeirsdóttir og Jóhanna Harpa Árnadóttir. Sigurður Ingi Friðleifsson og Steingrímur Jónsson sóttu fundinn í fjarfundarbúnaði. Forföll boðaði Hrönn Hrafnsdóttir
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir starfsmaður ráðsins sat fundinn og skrifaði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð seinasta fundar var samþykkt án athugasemda.
Niðurstaða rýningar á aðgerðaáætlun í loftslagsmálum
- Yfirferð og umræður um drög að áliti
- Lokaumræður um ályktun loftslagsráðs um aðgerðaáætlunina.
Næstu skref
- Formanni var falið að finna orðalag varðandi nokkur efnisatriði sem útaf standa í ljósi umræðunnar á fundinum. Tillaga formanns að lokaorðalagi verður send fulltrúum ráðsins til samþykktar áður en niðurstaðan fer til ráðherra og síðar birt á verfsvæði ráðsins.
Kolefnishlutleysi
- Hugmyndarammi kynntur
- Umræður
- Hnattrænt samhengi.
- Tengsl við framtíðarsýn þjóðarinnar
- Forsendur og mælikvarðar
- Áhrifaþættir og stjórntæki
- Athuga að upptalningin er ekki tæmandi, með tímanum komum við eflaust auga á fleira sem á heima hér.• Um er að ræða viðbót við skuldbindingar um samdrátt í losun fyrir 2030
Næstu skref
- Að setja í gang faglega vinnu sem myndi gagnast sem faglegur grunnur umræðu um kolefnishlutleysi innan ráðsins, innan Stjórnarráðsins og í samfélaginu.
- Leggja grunn að markvissari aðkomu Íslands að samstarfi um kolefnishlutleysi á vettvangi Parísarsamningins, innan Norræns samstarfs og óformlegu samstarfi ríkja, borga og atvinnulífs. Byrjað verður á að fá kynningu frá Richard Baron framkvæmdastjóra 2050 Pathways Platform.
Aðlögunaráætlun
Skipulag málþings
- Málþing verði haldið um miðjan maí. Staðfest dagseting ekki komin.
Næstu skref
- Unnið verður áfram með verkefnið og kynnt betur á næsta fundi
Önnur mál
Samráðsfundur með forstöðumönnum stofnana UAR
- Formaður Loftslagsráðs hitti forstöðumenn stofnana ráðuneytisins fyrr í vikunni. Mikill samstarfsvilji er hjá stofnunum og óskaði formaður ráðsins eftir frekari upplýsingum frá þeim sem munu nýtast til mats ráðsins á stjórnsýslu loftslagsmála. Stefnt er að því að skila áliti til ráðherra nú á vordögum.
- Óskað verður eftir að Ásdís Hlökk, skipulagsstjóri komi á fund ráðsins.
Fundi slitið kl. 12:00