STARFSÁÆTLUN LOFTSLAGSRÁÐS

Starfsáætlun Loftslagsráðs 2026

Hér má einnig hlaða niður skjalinu.

Hlutverk

Meginhlutverk Loftslagsráðs er að vera stjórnvöldum til aðhalds og ráðgjafar í loftslagsmálum.

Ráðið hefur óháða yfirsýn og býr yfir þekkingu á loftslagsmálum sem stuðlar að upplýstri umræðu um ákvarðanir stjórnvalda og hagaðila og metur reglulega framvindu aðgerða og árangur á þessu sviði.

Framtíðarsýn

Sameiginlegur og óháður vettvangur loftslagsmála sem vísar veg ákvarðanatöku og byggir á virðingu og trausti milli stjórnvalda, hagaðila og almennings.

Loftslagsráð er sjálfstætt í störfum sínum og fulltrúar í ráðinu eru einungis bundnir af eigin dómgreind. Ráðgjöf Loftslagsráðs byggir á bestu fáanlegu vísindum og þekkingu.

Unnið er eftir starfsreglum og samskiptastefnu Loftslagsráðs og gangsæi ríkir um störf ráðsins og árangur. 

Verkefni Loftslagsráðs falla í fjóra meginstrauma og viðfangsefni sem nánar eru gerð skil hér fyrir neðan.