Fundargerð 92. fundar Loftslagsráðs

5. febrúar 2025

Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Auður Alfa Ólafsdóttir, Bjarni Diðrik Sigurðsson, Bjarni Már Magnússon, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Ingibjörg Svala Jónsdóttir, Þorgerður María Þorbjarnardóttir.

Fundurinn var haldinn á Veðurstofunni, Bústaðarvegi 7

Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.

Fundargerð seinasta fundar

Fundargerð 91. fundar sem haldinn var 22. janúar 2026 var samþykkt án athugasemda.

Aðlögunaráætlun

Fyrsta aðlögunaráætlun Íslands vegna áhrifa loftslagsbreytinga hefur verið í undirbúningi undanfarin ár.

Óskað var eftir áliti ráðsins á forgangsröðun fyrstu aðgerða og áætluninni í heild sinni. Þann 14. nóvember barst ráðinu tillaga verkefnastjórnar að aðlögunaráætlun auk minnisblaðs. Ítarefni vegna tillögu verkefnastjórnar barst síðan þann 19. nóvember. Aðlögunaráætlun hefur verið á dagskrá seinustu tveggja funda Loftslagsráðs.

Fyrir fundinum lágu lokadrög að áliti sem var samþykkt með breytingum sem gerðar voru á fundinum.

Samantekt um votlendi

Loftslagsráð hefur undanfarna mánuði unnið að því að taka saman upplýsandi skýrslu um hvers vegna endurheimta þarf votlendi og hvernig það er að ganga.  

Fyrir fundinum lágu drög að skýrslunni var athyglinni beint að 5. kafla hennar, þar sem horft er fram á veginn og settar fram ábendingar ráðsins um hvað þarf að raungerast til að hraða endurheimt votlendis. Stefnt er að útgáfu skýrslunnar á næstu vikum.

Skýrsla verkefnastjórnar loftslagsaðgerða

Skýrsla verkefnastjórnar loftslagsaðgerða var gerð opinber 20. nóvember. Samkvæmt 5.gr. laga um loftslagsmál, ber verkefnastjórn að skila árlega skýrslu til ráðherra um framgang aðgerðaáætlunar. Í skýrslunni skal farið yfir þróun losunar og hvort hún er í samræmi við áætlanir, fjallað um framgang aðgerða og eftir atvikum settar fram ábendingar verkefnisstjórnar.

Rætt var um viðbrögð Loftslagsráðs við skýrslu verkefnisstjórnarinnar  og verður umræðunni framhaldið á næsta fundi ráðsins.

Önnur mál

Sagt var frá fundi Loftslagsráðs með starfshópi um hagsmunagæslu stjórnvalda vegna endurskoðunar ESB á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug (ETS). Starfshópurinn hefur verið að funda með helstu hagsmunaaðilum og var Loftslagsráð í þeim hóp.

Loftslagsráð sótti umræðufund á vegum þjóðaröryggisráðs um möguleg afdrif veltihringrásar Atlantshafsins (AMOC). Var ráðinu ásamt fjölmörgum öðrum aðilum boðið til umræðufundar 15. janúar í því skyni að upplýsa um nýlegar rannsóknaniðurstöður um AMOC og ræða stofnun mögulegs umræðu- og samráðsvettvangs lykilaðila innan stjórnkerfisins.