07. apríl 2025
Fulltrúar sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Auður Alfa Jónsdóttir, Bjarni Már Magnússon, Halldór Björnsson, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Helga Ögmundardóttir, Ingibjörg Svala Jónsdóttir, Þorgerður María Þorbjarnardóttir.
Fundurinn var haldinn á Veðurstofu Íslands, kl. 14:00-16:00.
Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri skráði fundargerð.
Fundargerð seinasta fundar
Fundargerð 82. fundar, sem haldinn var 8. apríl skoðast samþykkt.
Aðlögun að loftslagsbreytingum og vísindaráðgjöf
Umræða um stöðu aðlögunar að loftslagsbreytingum og vísindaráðgjöf og möguleg viðbrögð ráðsins. Eitt af fyrstu verkefnum Loftslagsráðs var að taka til umfjöllunar aðlögun að loftslagsbreytingum þar var skýrslan Að búa sig undir breyttan heim tekin saman á grunni málþings og vinnustofu á vegum Loftslagsráðs.
Vísindanefndir skipaðar af ráðherrum loftslagsmála hafa gefið út skýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi og voru þær, ásamt fyrrnefndri skýrslu Loftslagsráðs, til grundvallar Hvítbók um aðlögun að loftslagsbreytingum – drög að stefnu sem gefin var út af umhverfis- og auðlindaráðuneyti árið 2021. Í kjölfarið birtist fyrsta stefna Íslands um aðlögun að loftslagsbreytingum Í ljósi loftslagsvár. Síðan kom út stefnuplaggið Loftslagsþolið Ísland – Tillögur fyrir gerð landsáætlunar um aðlögun 2023.
Landsnefnd um vísindastarf um loftslagsbreytingar var skipuð í nóvember 2024. Fyrsta verkefni nefndarinnar var að móta tillögur um hvernig unnið verði að næstu vísindaskýrslu um loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra. Nefndin hefur nýverið skilað tillögum sínum og formaður ráðsins sem á sæti í ráðinni gerði grein fyrir meginþáttum þeirra á fundinum. Nefndin gerir tillögur í skilabréfi Vísindanefndarinnar að sínum og útfærir vinnulagið nánar, leggur til tímasetningar áfanga og leggur mat heildarkostnað.
Ráðinu barst jafnframt erindi frá Halldóri Björnsyni um skort þekkingu á loftslagbreytingum og afleiðingum þeirra. Ráðið tók undir áherslur Halldórs og fól formanni, varaformanni og framkvæmdastjóra að funda með Halldóri til að móta viðbrögð ráðsins, sem lögð verða fyrir ráðið til samþykktar.
Staða verkefna
Farið var yfir stöðu helstu verkefna, votlendisverkefnis, tölur um losun og NDC.
Önnur mál
Lög um loftslagsmál – Í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu er unnið að því að birta drög að lögum um loftslagsmál í samráðsgátt á næstu vikum.