Fundargerð 70. fundar Loftslagsráðs

12. júní 2024

Meðlimir sem sátu fundinn: Halldór Þorgeirsson, Brynhildur Davíðsdóttir, Halldór Björnsson, , Auður Alfa Ólafsdóttir, Helga Jóhanna Bjarnadóttir, Stefán Þór Eysteinsson, Bjarni Már Magnússon, Þorgerður María Þorbjarnardóttir og Helga Ögmundardóttir (varaflulltrúi)

Fundurinn var haldinn í Hannesarholti, Grundarstíg 10, kl. 12:15 – 16:00.

Áherslur í starfi ráðsins

Meðlimir ráðsins kynntu sig með því að fara yfir sinn bakgrunn, þekkingu og reynslu í ljósi eftirfarandi hæfniviðmiða sem tilgreind eru í reglugerð um Loftslagsráð:

  • Loftslagsréttur, stjórnsýsla og stefnumótun
  • Loftslagsvísindi, áhættugreining og náttúruvá
  • Skipulag og landnýting
  • Hagrænar og samfélagslegar greiningar
  • Smfélagsbreytingar og réttlát umskipti
  • Líffræðileg fjölbreytni, kolefnishringrás lands og vistkerfisþjónusta
  • Nýsköpun og tækniþróun
  • Orkumál í samhengi orkuskipta og kolefnishlutleysis

Síðan lýstu þeir sýn sinni á áherslur í starfi ráðsins næstu fjögur árin einkum á næsta starfsári. Samtalið mun halda áfram á vinnufundi ráðsins þar sem leitast verður við að móta áherslur og forgangsröðun á komandi mánuðum. Stefnt er að því að halda næsta fund 28. ágúst.