Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (AR6-WG1) sem kom út í dag er afdráttarlaus. Verði ekki gripið til víðtæks og tafarlauss samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda mun að meðaltali hlýna meira en um 1,5°C og jafnvel 2,0°C á öldinni sem er yfir viðmiðum Parísarsamkomulagsins. Umfang hlýnunar er í beinu hlutfalli við uppsafnaða losun CO2. Því þarf að stöðva losun CO2 svo hlýnun jarðar stöðvist, auk þess sem draga þarf úr losun annarra gróðurhúsalofttegunda. Draga þarf verulega úr losun til að ná viðmiðum samkomulagsins. Ýmsar raskanir munu verða á veðurlagi samfara hlýnun vegna áframhaldandi losunar; ákefð í aftakaveðri eykst, hitabylgjur, ofsarigningar, þurrkar og aukin hætta á hörmunugum vegna skógar- og gróðurelda.
Þetta er 6. skýrsla vinnuhóps sérfræðingahóps Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) og eru niðurstöðurnar í samræmi við fyrri skýrslu að loftslagsbreytingar eru að gerast og þær eru af mannavöldum.
Gagnvirkt landakort eða Atlas er nýjung í skýrslunni. Hægt er að skoða niðurstöður mælinga, líkana og framtíðarspár, mismunandi gagnagrunna og breytur yfir tímabil og árstíð.
Skýrslan staðfestir grafalvarlegt ástand
Veðurstofa Íslands birtir á vef sínum helstu nýmæli í þessari nýju skýrslu en hún endurspeglar mikilvægar framfarir í vísindum frá því að 5. ritröð kom út 2013–2014. Skilningur á loftslagsbreytingum fyrri tíðar hefur aukist og að sama skapi eru framtíðarspár taldar öruggari.
- Nú er enn greinilegra en fyrr að athafnir mannkyns eru meginorsök margvíslegra breytinga á loftslagi.
- Ýtarlegri gögn liggja nú fyrir sem gefa til kynna að loftslagsbreytingar geri það að verkum að ýmsir aftakaatburðir verða algengari og afdrifaríkari, þ.m.t. ákafari rigning og meiri öfgar í hitabylgjum og þurrkum.
Mat á meðalhita jarðar er nú betra en fyrr og hefur það ásamt mjög heitum árum síðan 2011 hækkað mat á hlýnun jarðar. - Í skýrslunni er kynnt besta mat sem gert hefur verið hingað til á líklegri hlýnun og hækkun sjávarstöðu í framtíðinni.
- Kynnt er nýtt hugtak í skýrslunni, loftslagstengdir áhrifavaldar (Climatic Impact Drivers; CID), sem hjálpa til við að meta áhrif breytinga í eðlisþáttum loftlags (hita, úrkomu, þurrkum, snjó, vindi, strandflóðum o.þ.h.) á samfélög og vistkerfi.
- Samkvæmt þróaðri reikningum en áður hafa verið tiltækir er áætlað að meira en helmings líkur séu á að hlýnun nái 1,5°C snemma á fjórða áratug þessarar aldar, sem er fyrr en gert var ráð fyrir í sérstakri skýrslu IPCC um 1,5 °C hlýnun sem kom út árið 2018.
Í þessari skýrslu er sérstök áhersla lögð á breytingar í hnattrænni hringrás vatns. Skýrslan sýnir að síðan 1950 hafa verið meiri öfgar í ákafri úrkomu og þurrkum og almennt meiri breytileiki í úrkomu víða á jörðinni. Skýrslan sýnir að við áframhaldandi hlýnun má gera ráð fyrir áframhaldandi breytingum á hnattrænni hringrás vatns , þ.e. að almennt verði meiri uppgufun raka og meiri úrkoma þegar litið er til jarðarinnar allrar þó staðbundið geti þurrkar aukist. - Þessi skýrsla sýnir að mögulegt er að takast á við loftmengun og loftslagsbreytingar samtímis. Hraður samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda ásamt stífum vörnum gegn loftmengun bæta bæði loftslag og loftgæði.
Athafnir manna hafa áhrif
Í ágripi skýrslunnar, sem ætlað er þeim sem móta stefnu (Summary for Policymakers), eru meginatriði hennar dregin saman. Athafnir manna hafa ótvíræð áhrif; víðtækar, hraðar og fordæmalausar breytingar. Meðal þeirra og annarra atriða í meginmáli skýrslunnar nefnir Veðurstofan á vef sínum eru:
- Athafnir manna hafa ótvírætt hitað lofthjúpinn, haf- og landsvæði. Víðtækar og hraðar breytingar í lofthjúpi, hafi, freðhvolfi og í lífríki hafa átt sér stað. Þessar breytingar eru fordæmalausar þegar litið er til síðustu alda og árþúsunda.
- Síðustu fjóra áratugi hefur hver áratugur verið hlýrri en allir fyrri áratugir síðan samfelldar mælingar hófust (um 1850). Meðalhiti jarðar fyrstu tvo áratugi þessarar aldar var tæplega 1°C hærri en meðaltal áranna 1850–1900, eða 0.99 [með óvissubili 0.84 til 1.10] °C. Síðasti áratugur var svo enn heitari, eða 1.09 [0.95 til 1.20 ] °C að meðaltali. Til samanburðar má benda á að í Parísarsamkomulaginu skuldbinda aðildarþjóðir Sameinuðu þjóðanna sig til þess að halda hlýnun vel undir 2°C og kanna leiðir til að takmarka hlýnun við 1.5 °C.
- Athafnir manna hafa haft áhrif á veðurlag víða í heiminum, s.s. aukna úrkomu og breytingar á úrkomumynstri, þ.m.t. monsún rigningum. Þá eru þurrkar og hitabylgjur algengari og heitari á flestum landsvæðum. Auk þess hafa hitabeltislægðir breyst; fleiri ná nú að verða öflugir fellibylir og ákafari úrkoma fylgir þeim. Áhrif manna hafa líklega gert ýmsa aftakaatburði algengari, s.s. flóð, gróður- og skógarelda.
- Aukin gróðurhúsaáhrif verða til þess að varmi safnast upp í loftslagskerfinu. Af þessum varma fór 91% í að hita hafið, en 5% í hlýnun yfirborðs jarðar, 3% í bráðnun íss og einungis 1% fór í að hita andrúmsloftið. Aukin upptaka hafsins á CO2 úr lofthjúpnum sýrir hafið en nánast öruggt er að súrnun sjávar er af mannavöldum.
- Jöklar hopa um alla jörðu og stóru ísbreiðurnar á Suðurskautslandi og Grænlandi tapa massa. Rýrnun ísbreiðanna og jökla utan heimskautasvæða hefur hert mikið á sér á síðustu 30 árum og hefur árlegt massatap margfaldast.
- Massatap íss á suðurhveli hækkar sjávarborð við Ísland meira en massatap á Grænlandi. Meðalrýrnun allra jökla á jörðinni síðustu 30 árin samsvarar því að Hofsjökull og Langjökull hverfi árlega.
- Hafísútbreiðsla á Norðurhveli hefur dregist mjög mikið saman. Þó margir ólíkir ferlar komi hér við sögu er ljóst að athafnir mannkyns hafa haft veruleg áhrif um allt freðhvolfið (þ.e. ísa- og snjóasvæði hnattarins).
- Hnattrænt hækkaði sjávarstaða hraðar á síðustu öld en í a.m.k 3000 ár, að meðaltali um 0.2 [0.15 til 0.25] m milli 1901 til 2018. Hraði hækkunarinnar jókst eftir því sem leið á síðustu öld. Að meðaltali var árleg hækkun 1.3 [0.6 til 2.1] mm/ári frá 1901 til 1971 en jókst í 1.9 [0.8 til 2.9] mm/ári milli áranna 1971 til 2006 og jókst aftur í 3.7 [3.2 til 4.2] mm/ári frá 2006 til 2018. Áhrif athafna manna var mjög líklega leiðandi þáttur í þessum breytingum a.m.k. síðan 1971.
Nánar um IPCC og gerð skýrslunnar
Á vegum Sameinuðu þjóðanna starfar vísindanefnd sem fjallar um loftslagsbreytingar. Á ensku heitir hún Intergovernmental Panel on Climate Change, skammtafað IPCC, en á íslensku er nefndin kölluð Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar. . Nefndin hefur það hlutverk að taka saman vísindalegar, tæknilegar, félags- og efnahagslegar upplýsingar um grundvöll þekkingar á loftslagsbreytingum af mannavöldum. Úttektirnar fjalla um vísindalega þekkingu á loftslagsbreytingum af mannavöldum, um afleiðingar þessara breytinga og um aðlögun og viðbrögð til að sporna við þessum breytingum. Veðurstofa Íslands fer með aðild Íslands að IPCC. Sjá nánar um hlutverk IPCC og vinnu við gerð vísindaskýrslnanna á vef Veðurstofunnar.
Úttektir nefndarinnar eru unnar af þremur mismunandi vinnuhópum. Vinnuhópur 1 (WG1) fjallar um jarð- og náttúruvísindi og vísindalega þekkingu á veðurfari og loftslagsbreytingum. Vinnuhópur 2 (WG2) leggur mat á tjónnæmi (e. vulnerability) félags-, efnahags- og náttúrulegra kerfa, neikvæðar og jákvæðar afleiðingar loftslagsbreytinga og möguleika á aðlögun. Vinnuhópur 3 (WG3) leggur mat á leiðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og á aðrar leiðir til að koma í veg fyrir loftslagsbreytingar. Enskur titill skýrslunnar sem nú kemur út er Climate Change 2021: The Physical Science Basis.
Guðfinna Aðalgeirsdóttir prófessor í jarðeðlisfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands og annar fulltrúi háskólasamfélagsins í Loftslagsráði er einn af aðalhöfundum þessa fyrsta hluta skýrslunnar (Working Group 1) um náttúrufarsbreytingar af völdum manngerðra loftslagsbreytinga, nánar tiltekið einn af höfundum 9. kafla um hafið, freðhvolfið og sjávarstöðubreytingar.